Skilmálar og skilaréttur

Skilmálar  – Marýs.is

1. Skilgreining
Eigandi Marýs.is og seljandi er Maríanna Svansdóttir, kennitala 241095-3399.

2. Skilaréttur
Skiptifrestur er 30 dagar frá afhendingardegi. 
Vara sem er skilað þarf að vera í upprunalegu ástandi og í upprunalegum umbúðum. Ábyrgðarskírteini þarf að fylgja þegar það á við. Kvittun eða vörureikningur þarf einnig að fylgja þegar það á við.
Vörur eru endurgreiddar að fullu ef þær henta ekki.

3. Pöntun
Ef varan er ekki til á lager getum við sérsmíðað sambærilega vöru ef þess er óskað, oft er hægt að ganga frá kaupum og varan gerð að biðpöntun og er þá smíðuð eftir pöntun hverju sinni. Ef óskir eru um sérsmíði og útlitsbreytingu á vöru skulu upplýsingar um það berast í gegnum tölvupóst marys@marys.is

Ein stærðarbreyting á hringum er innifalinn í kaupverðinu, sé hún gerð innan 1 mánaða frá kaupdegi og varan er ónotuð. Hámark 3 númer stækkun innifalinn í hringum gerðir úr gulli en engin kostnaður er við stækkun silfurhringa. Séu hringar sendir með pósti til breytingar, greiðir kaupandi sendingakostnað.

4. Upplýsingar
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

5. Verð
Marýs.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara, t.d. vegna þess að heimsmarkaðsverð eðalmálma getur breyst hratt.
Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir Marýs.is og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa.
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.

6. Greiðsla
Við tökum á móti flestum greiðslukortum.
Einnig er hægt að borga með bankamillifærslu og er sá möguleiki fyrir hendi í greiðsluferlinu við innlögn pöntunar.

7. Póstsendingar innanlands
Allar vörur sem eru sendar fara með Íslandspósti og greiðir kaupandi sendingarkostnaðinn samkvæmt verðskrá Íslandspósts.

Um leið og sending er farin frá seljanda er hún á ábyrgð kaupanda.
Seljandi og kaupandi geta samið sérstaklega um tryggingu á sendingu og þarf kaupandi sérstaklega að biðja um það hjá marys@marys.is

8. Póstsendingar til útlanda
Ef verslað er erlendis frá greiðir kaupandi sendingarkostnaðinn, og allan þann aukakostnað sem kemur til vegna sendingar.
Seljandi og kaupandi geta samið sérstaklega um tryggingu á sendingu og þarf kaupandi sérstaklega að biðja um það hjá marys@marys.is